HÖRÐ barátta og óvænt úrslit hafa einkennt fyrstu þrjár umferðirnar í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands. Stigahæstu skákmennirnir hafa þurft að hafa mikið fyrir vinningunum. Þannig náðu þeir þrír stigahæstu einungis tveimur jafnteflum í annarri umferð mótsins. Þeir stigalægri eru sýnd veiði en ekki gefin, ólíkt því sem stundum hefur verið, enda mæta margir þeirra til leiks í góðri æfingu eftir að hafa aflað sér dýrmætrar reynslu á alþjóðlegum skákmótum í sumar. Engu að síður eru það stórmeistararnir tveir, Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson, sem hafa tekið forystuna á mótinu þegar þremur umferðum af níu er lokið. Þeir Þröstur og Hannes mættust í fjórðu umferð sem tefld var í gærkvöldi og gæti sú skák ráðið úrslitum á mótinu.
Í fyrstu umferð mótsins vakti skák þeirra Jóns Viktors og Braga Þorfinnssonar mesta athygli. Bragi hafði svart og eftir slæman afleik Jóns Viktors í 22. leik gat Bragi unnið riddara á einfaldan hátt, en báðir keppendur voru slegnir skákblindu og skákin fór aftur í fyrri farveg þar sem Jón Viktor hafði betri stöðu og innbyrti að lokum vinninginn. Í þessari umferð tefldi kona í fyrsta sinn í landsliðsflokki og ekki er hægt að segja annað en byrjunin lofi góðu, en Lenka Ptacnikova gerði jafntefli við Stefán Kristjánsson. Í annarri umferð hélt hún uppteknum hætti og Hannes Hlífar Stefánsson mátti hafa sig allan við til að ná jafntefli gegn henni. Þetta var reyndar umferð hinna stigalægstu á mótinu, en þrír stigalægstu skákmennirnir fengu fleiri vinninga en þeir þrír stigahæstu. Loksins í þriðju umferð voru úrslitin nálægt því eftir bókinni, en Björn Þorfinnsson náði þó að leggja Braga bróður sinn og þar með er hann kominn í toppbaráttuna í mótinu. Staðan:
1.-2. Hannes Hlífar og Þröstur 2½ v.
3.-5. Jón Viktor, Stefán Kristjánsson, Björn Þorfinnsson 2 v.
6.-8. Bragi Þorfinnsson, Lenka Ptacnikova, Arnar Gunnarsson 1 v.
9.-10. Jón Garðar Viðarsson, Sigurbjörn Björnsson ½ v.
Staðan í kvennaflokki er þessi:
1. Harpa Ingólfsdóttir 2 v. af 2
2. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 1½ v.
3.-4. Elsa María Þorfinnsdóttir og Anna Björg Þorgrímsdóttir 1 v.
5. Aldís Rún Lárusdóttir ½ v.
6. Hallgerður H. Þorsteinsdóttir 0 v.
Teflt er daglega í landsliðsflokki í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Umferðir hefjast kl. 17. Eftirfarandi skák var tefld í fyrstu umferð mótsins.
Hvítt : Sigurbjörn Björnsson
Svart: Hannes Hlífar Stefánsson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 Dc7 6. Be2 Rf6 7. 0-0 Be7 8. Be3 d6 9. f4 b5 10. a3 --
Önnur leið er 10. e5, t. . d. 10. -- dxe5 11. fxe5 Rfd7 12. Bf3 Bb7 13. Bxb7 Dxb7 14. Dg4 Rc6 15. Dxg7 0-0-0 16. Rxc6 Dxc6 17. Dxf7 Hhg8 18. Df3 Dxf3 19. Hxf3 Rxe5 20. Hh3 Rc4 21. Re4, jafntefli
(Rytsagov - Júdasín, Vilnius 1997).
10. . . Bb7 11. Bd3 --
11. . . Rbd7 12. Kh1 --
12. . . 0-0 13. Df3 --
13. . . Rc5 14. Hae1 Rfd7 15. Dg3 Hfe8 16. f5!? --
Það er yfirleitt ekki talið gott fyrir hvít að gefa svarti eftir e5-reitinn í stöðum sem þessari. Til greina kemur að leika 16. Rde2, ásamt Be3-d4 síðar.
16. . . Bf6 17. fxe6 fxe6 18. Rde2 Re5 19. Rf4 Dd8 20. Hd1 De7 21. Dh3 g6
22. b4? --
Hvítur missir þolinmæðina. Hann verður að bíða átekta með leik eins og 22. Rfe2, ásamt 23. Bd4, þótt staða hans sé óvirk og vandtefld í því tilviki.
22. . . Rexd3 23. cxd3 Bxc3 24. bxc5 dxc5 25. Hc1 Bd4 26. Bxd4 cxd4 27. Rxe6!? --
27. . . Bc8
Ekki verður annað séð en svartur megi drepa riddarann, t.d. 27. . . Dxe6 28. Dxe6+ Hxe6 29. Hc7 Hb8 30. Hff7 Hc8! 31. Hg7+ Kf8 32. Hcf7+ Ke8 33. h4 Hc1+ 34. Kh2 Bc6 o.s.frv. Keppendur hafa trúlega verið komnir í tímahrak og Hannes sér, að leikurinn í skákinni gefur honum mjög gott tafl.
28. Hc7 Dxc7 29. Rxc7 Bxh3 30. Rxe8 Hxe8 31. gxh3 Hf8 32. Hc1 --
Hvítur má ekki fara í hrókakaup: 32. Hxf8+ Kxf8 33. Kg2 a5 34. Kf3 a4 35. Ke2 b4 36. Kd2 36. . . b3 37. h4 (37. Kd1 Kf7 38. Kd2 Ke6 39. Kd1 Ke5 40. Kd2 Kf4 41. Kd1 Ke3 42. e5 Kxd3 43. Kc1 Kc3 44. e6 d3 44. e7 b2+ 40. Kb1 d2 41. e8D d1D+ 42. Ka2 Da1+ mát) 37. . . Kg7 38. Kc1 Kh6 39. Kb2 Kh5 40. e5 (40. Kc1 Kxh4 41. Kb2 Kh5 42. Kc1 g5 43. Kb2 Kg6 44. Kb1 h5) 40. . . Kh6 41. e6 Kg7 42. e7 Kf7 og svartur vinnur, með frípeð á báðum vængjum.
32. . . Hf3 33. Hc6 --
33. . . a5 34. Hc5 Hxd3 35. Hxb5 Hxa3 36. Kg2 a4 37. Hd5 --
Eða 37. Hb4 d3 38. Hd4 Ha2+ 39. Kf3 d2 40. Ke2 a3 41. Ha4 Kf7 42. Ha6 g5 43. e5 Ke7 44. Kd1 h6 45. Ke2 h5 46. Kd1 Ha1+ 47. Kxd2 a2 48. Kc3 Hc1+ 49. Kb2 a1D+ 50. Hxa1 Hxa1 51. Kxa1 Ke6 52. Kb2 Kxe5 53. Kc3 Ke4 54. Kd2 Kf3 55. Kd3 g4 56. hxg4 hxg4 57. Kd4 Kg2 58. Ke4 Kxh2 og svartur vinnur.
37. . . Hd3 38. Ha5 a3 39. Ha7 Hd2+ 40. Kg3 a2 41. Kf4 Hf2+ 42. Ke5 d3 43. Ke6 Hc2
og hvítur gafst upp. Eftir 44. Kf6 Hc6+ 45. Ke5 d2 vekur svartur upp drottningu og vinnur létt.
Daði Örn Jónsson Bragi Kristjánsson