FJÓRAR umsóknir hafa borist Biskupsstofu um embætti sóknarprests á Siglufirði en umsóknarfrestur rann út 1. september síðastliðinn. Staðan verður veitt frá 1. október. Umsækjendur eru: Sr.

FJÓRAR umsóknir hafa borist Biskupsstofu um embætti sóknarprests á Siglufirði en umsóknarfrestur rann út 1. september síðastliðinn. Staðan verður veitt frá 1. október.

Umsækjendur eru: Sr. Sigurður Ægisson og guðfræðingarnir Halldóra Ólafsdóttir, Stefán Már Gunnlaugsson og Þórður Guðmundsson.