KONA á þrítugsaldri var flutt á neyðarmóttöku Landspítalans í Fossvogi á sunnudag vegna gruns um að henni hefði verið nauðgað í sumarbústað í Biskupstungum í Árnessýslu aðfaranótt sunnudags.
KONA á þrítugsaldri var flutt á neyðarmóttöku Landspítalans í Fossvogi á sunnudag vegna gruns um að henni hefði verið nauðgað í sumarbústað í Biskupstungum í Árnessýslu aðfaranótt sunnudags. Gleðskapur var í sumarbústaðnum og tilkynnti einn gestanna málið til lögreglunnar á Selfossi á sunnudagsmorgun. Lögreglan yfirheyrði tvo menn á staðnum en einn maður er grunaður um verknaðinn. Málið er í rannsókn en ekki hefur borist formleg kæra vegna þess.