SAMHERJI hf. hefur keypt 14,7% eignarhlut í Íslandslaxi hf. í Grindavík og nemur kaupverð eignarhlutarins um 51 milljón króna.

SAMHERJI hf. hefur keypt 14,7% eignarhlut í Íslandslaxi hf. í Grindavík og nemur kaupverð eignarhlutarins um 51 milljón króna. Fyrir kaupin átti Samherji 68 milljónir að nafnvirði í Íslandslaxi en á nú 88 milljónir að nafnvirði, eða 64,7% alls hlutafjár í félaginu. Finnbogi Jónsson, stjórnarformaður Samherja og Íslandslax, segir að markmiðið með kaupunum sé að ná fram hagræðingu í rekstrinum.

Í tilkynningu frá Samherja á Verðbréfaþingi Íslands segir að samhliða þessu hafi orðið samkomulag um breytingar á framkvæmdastjórn Íslandslax. Ólafur Wernersson, núverandi framkvæmdastjóri, mun láta af stjórnunarstörfum hjá félaginu um næstu mánaðamót. Hann mun sinna ráðgjafarstörfum fyrir félagið til næstu áramóta. Engar ákvarðanir hafi þó verið teknar um ráðningu nýs framkvæmdastjóra og mun daglegur rekstur fyrst um sinn heyra undir Finnboga Jónsson. Þá segir í tilkynningunni að stefnt sé að því að einfalda stjórnkerfi félagsins. Meðal annars muni söludeild Samherja hf. sjá um sölu- og markaðsmál fyrir Íslandslax en fjármál og viðhaldsmál verði tengd núverandi starfsemi Samherja í Grindavík.

Finnbogi Jónsson segir að hægt verði að taka hluta af rekstri Íslandslax inn undir rekstur Samhverja og þannig ná fram hagræðingu í rekstrinum. Með uppsögn Ólafs Wernerssonar sé verið að draga úr kostnaði. Ólafur hafi verið að sinna markaðsmálum og öðrum málum sem talið sé að hægt verði að gera innan Samherja með því að samnýta starfsfólk fyrirtækjanna tveggja.