TURTILDÚFURNAR Britney Spears og Justin Timberlake hafa ákveðið að ganga í hnapphelduna. Justin bar upp bónorðið á heimili umboðsmanns þeirra í Flórída þar sem þau eru við upptökur á dúett sem þau ætla að syngja saman á nýjustu plötu Britney.

Poppprinsessan limafagra játaðist sínum heittelskaða samstundis og felldi nokkur tár að sögn viðstaddra.

Justin hafði fengið að láni hring frá móður sinni til að festa kærustuna. Hringurinn góði var þó helst til lítill og gengur Britney með hann í keðju um hálsinn enn um sinn. Britney hefur þó ákveðið að hanna sinn eigin trúlofunarhring þegar fram líða stundir.

Britney og Justin kynntust í hinum margrómaða Mikka mús klúbbi þegar þau voru börn. Þau byrjuðu saman á MTV-verðlaunahátíðinni í fyrra og hafa búið saman í sloti Britneyar í Hollywood undanfarna mánuði.

Parið prúða hefur lýst yfir margoft að þau ætli ekki að stunda kynlíf fyrir hjónaband. Britney segir biðina þó verða sífellt erfiðari þar sem þau Justin eyði öllum stundum saman. En nú fer biðin víst að styttast!