Julie Ingham
Julie Ingham
Julie Ingham fæddist 5. september 1959 í Rosendale í Norð-vestur-Englandi. Hún lauk framhaldsskólaprófi og hóf svo nám í Leeds-háskóla og lagði þar stund á ensku, málvísindi og bókmenntir. Eftir réttindapróf í kennslufræði IFL (kennsla í ensku fyrir útlendinga) kom hún til Íslands og hóf að kenna þar. Fyrst kenndi hún í Málaskólanum Mími og einnig í sendiráðum og víðar. Hún stofnaði Enskuskólann fyrir fimmtán árum og hefur rekið hann síðan. Julie á þrjú börn.
Julie Ingham fæddist 5. september 1959 í Rosendale í Norð-vestur-Englandi. Hún lauk framhaldsskólaprófi og hóf svo nám í Leeds-háskóla og lagði þar stund á ensku, málvísindi og bókmenntir. Eftir réttindapróf í kennslufræði IFL (kennsla í ensku fyrir útlendinga) kom hún til Íslands og hóf að kenna þar. Fyrst kenndi hún í Málaskólanum Mími og einnig í sendiráðum og víðar. Hún stofnaði Enskuskólann fyrir fimmtán árum og hefur rekið hann síðan. Julie á þrjú börn.

Nú á evrópsku tungumálaári er Enskuskólinn er að hefja sextánda starfsár sitt. Skólinn er til húsa í Faxafeni 8 og er hann þar í nýju húsnæði. Julie Ingham stofnaði skólann haustið 1986 og hefur rekið hann síðan. Hún var spurð hvort breytingar yrðu á rekstri eða námsfyrirkomulagi samhliða flutningi í nýtt húsnæði.

"Já, fyrst og fremst höfum við nú fleiri kennslustofur og getum því boðið upp á að hafa fleiri bekki. Betri aðstaða er nú fyrir nemendur og kennara og við getum boðið margar kynningar í nýju opnu rými. Við ætlum m.a. að skipuleggja kynningar á málaskólum í Bretlandi og víðar. Þetta eru nýjungar. Við erum og með nýtt útibú á Selfossi. Þetta er í fyrsta skipti sem við kennum utan Reykjavíkur. Við auglýstum nýlega og höfum fengið frábærar viðtökur. Margir vilja bæta við sig enskukunnáttu á námskeiðum hjá okkur. Fólk vill gjarnan fá kennslu hjá kennurum sem hafa ensku að móðurmáli og leggja áherslu á talmálið. Við höfum fjölgað námskeiðum verulega síðustu ár, einkum hefur þessa gætt í fyrirtækjanámskeiðum. Við ætlum að fara að kynna næstu daga enskuþjónustu fyrir fyrirtæki. Þetta er þjónusta þar sem starfsfólki fyrirtækja er boðið á Netinu tækifæri til þess að senda okkur bréf eða tölvupóst sem við prófarkalesum sama dag. Mjög mikill áhugi er meðal fyrirtækja á að senda okkur starfsfólk til kunnáttumats eða að við komum í fyrirtækin til þess að meta kunnáttu starfsfólksins með viðtali. Þá mælum við með annaðhvort sérnámskeiði fyrir þeirra starfsgrein eða almennum námskeiðum til þess að gefa fólki aukið sjálfstraust í samskiptum á ensku. Þá má nefna að við erum að fara að opna nýja vefsíðu sem heitir enska.is. Þar verður upplýsingamiðlun fyrir Íslendinga um ensku og enskumælandi lönd og málaskóla erlendis. Einnig upplýsingar um orðabækur og líka upplýsingar fyrir enskukennara. Við erum búin að vinna við þetta í fimmtán ár og við búum yfir miklum upplýsingum sem við viljum með þessum hætti miðla til fólks."

-Hefur aðsókn verið góð hjá ykkur almennt?

"Já, fólki virðist líka mjög vel við það sem við bjóðum upp á. Fyrst kemur fólk í persónulegt viðtal og þá er því sagt á hvaða kunnáttustigi það lendir hjá okkur. Síðan er það spurt hvernig það ætli að nota sína enskukunnáttu - hvort það ætlar að nota hana í starfi, við ferðalög o.s.frv. Eftir svör bendum við fólki á hvar það er best sett, hvort sem það fer t.d. á almennt talnámskeið eða viðskiptanámskeið. Við erum líka með málfræði- og skriftarnámskeið. Sumir hafa góða kunnáttu en skortir orðaforða. Við höfum svo sérnámskeið fyrir eldri borgara. Fólk sem er á byrjendastigi er sett í mjög litla bekki og æfir þar talmálið. Það gefur gott andrúmsloft og örvar kjark fólks til þess að ráðast í að tala ensku. Ekki má svo gleyma barnanámskeiðunum. Við erum með námskeið fyrir börn á aldrinum 5 til 15 ára. Þau eru mjög vinsæl. Á þessum fimmtán árum hef ég séð hvernig yngri og yngri börn eru komin með nokkuð góðan orðaforða. Þegar þau koma í kennslu geta þau tengt saman þau orð sem þau hafa lært, bæði t.d. í tölvum, söng og fleira. Þau skortir bara tækifæri til að læra að tengja orðin saman, börn 6 til 8 ára hafa brennandi áhuga á að læra. Skólarnir eru farnir að kenna tíu ára börnum ensku en okkur sýnist að þau hafi áhuga á að byrja fyrr. Því yngri sem þau eru því betur gengur að kenna þeim."

-Hvað kenna margir við Enskuskólann?

"Við erum með fimm kennara í fullu starfi. Við erum svo með þrjá til fimm í viðbót sem eru með stundakennslu. Þetta fólk hefur allt ensku sem móðurmál og er allt sérlært í þeirri kennslugrein sem við bjóðum upp á. Sumir hafa mikla reynslu í viðskiptaenskukennslu. Flestir kennararnir eru frá Bretlandi, tveir frá Bandaríkjunum, einn frá Írlandi og einn frá Kanada."

-Er aðferð ykkar til að kenna ensku mjög ólík því sem gerist í skólakerfinu hjá okkur?

"Já, skólakerfið á Íslandi eins og víðar beinir kröftum sínum einkum að því að kenna nemendum fyrir próf. Það er yfirleitt meira en tuttugu nemendur í bekk í grunnskólum og þá er erfitt fyrir kennara að veita nemendum mikinn tíma í talæfingar. Við erum með átta kunnáttustig. Fólk hækkar sig um hálft stig milli námskeiða þannig að í raun er hægt hér að ganga upp sextán mismunandi námskeiðastig. Þannig getum við boðið nemendum upp á kennslu sem er sniðin við þeirra hæfi. Nemandinn heyrir strax að hinir nemendurnir eru með svipaða kunnáttugetu. Þá slakar fólk á og tekur fljótt þátt í kennslunni. Í okkar kennsluaðferð er mikið lagt upp úr paræfingum og hópumræðum."