Eru pylsur hollur matur? Það er ómögulegt að segja að einhver ein matvara sé óholl heldur verður að líta á máltíðina í heild, að sögn Laufeyjar Steingrímsdóttur, matvælafræðings hjá Manneldisráði.

Eru pylsur hollur matur?

Það er ómögulegt að segja að einhver ein matvara sé óholl heldur verður að líta á máltíðina í heild, að sögn Laufeyjar Steingrímsdóttur, matvælafræðings hjá Manneldisráði. "Pylsur geta verið hluti af hollu mataræði, þótt þær séu kannski ekki valdar sérstaklega hollustunnar vegna. Almennt er hægt að útbúa mjög holla og góða máltíð með pylsum, til dæmis pottrétti og annað. Hefðbundin pylsa með öllu er hins vegar mjög fiturík máltíð sem ekki er hægt að kalla holla."