Símenntunarmiðstöðvar landsins eru miðpunktur hvers landshluta í viku símenntunar. Sjöunda september bætist níunda stöðin við og verður hún í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hér eru nefnd örfá dæmi úr viðamiklum dagskrám stöðvanna.

Símenntunarmiðstöðvar landsins eru miðpunktur hvers landshluta í viku símenntunar. Sjöunda september bætist níunda stöðin við og verður hún í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Hér eru nefnd örfá dæmi úr viðamiklum dagskrám stöðvanna.

*Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar

Dæmi: Föstudaginn 7. september: Umhverfisráðstefna: Eyjafjörður og umheimurinn - umhverfismál. Staðardagskrá tekur þátt. Fræðsla um umhverfismál o.fl.

Sunnudagurinn 9. september: Kvöldmessa um mikilvægi símenntunar og kaffispjall á eftir um fræðslustarf kirkjunnar.

*Farskóli Norðurlands vestra - miðstöð símenntunar.

Dæmi: Fartölvuver - "Pétur og PC-bíllinn" á ferð með fartölvuverið. Um er að ræða fullkomið fartölvuver sem félög, stofnanir og fyrirtæki geta leigt til margs konar nota. Í ferðalaginu verða allir þéttbýlisstaðirnir heimsóttir og með lifandi hætti verður heimamönnum gefinn kostur á að kynnast möguleikum versins og þeim tækifærum sem þeim bjóðast í fjarnámi. Einnig verður kynnt hvernig menn bera sig að við fjarnám og tengimöguleikar og búnaður kynntir.

*Fræðslunet Austurlands.

Dæmi: Örkynningar verða á tölvu- og tungumálanámskeiðum í fyrirtækjum. Svæðisvinnumiðlun Austurlands verður með kaffispjall dagana 3.-7. september á öllum fjörðum fjórðungsins um endurmenntun, tölvur og tungumál á vinnumarkaði.

*Fræðslumiðstöð Þingeyinga

Dæmi: Miðvikudagur 5. september: Málfundur um tölvur og ferðaþjónustu. Forseti Íslands kemur í heimsókn og kveikir á fjarfundabúnaði.

Lögð verður áhersla á upplýsingaöflun og símenntun á söfnum og munu bóka- og byggðasafn Norður-Þingeyjarsýslu og bókasafn Suður-Þingeyjarsýslu standa fyrir kynningu á tölvunotkun og á kennsluefni í tungumálum.

*Fræðslumiðstöð Vestfjarða

Dæmi: Kynnt verður það nýjasta sem er að gerast í upplýsingatækni og athyglinni beint að fjarfundabúnaðartækni, sem hefur gjörbylt möguleikum fólks til að bæta við sig þekkingu, óháð búsetu þess. Ráðstefna í fjarfundi á Vestfjörðum.

*Fræðslunet Suðurlands.

Dæmi: Fjölmenningarkvöld í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurlands og Skólaskrifstofu Suðurlands, þar sem hugmyndin er að ná saman fulltrúum frá sem flestum þeirra fjölmörgu þjóða sem lifa og starfa á Suðurlandi. Um kvöldið verður opin dagskrá þar sem gestir frá ýmsum löndum munu kynna tungu og menningu sinnar þjóðar.

*Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Dæmi: Í tilefni Evrópsks tungumálaárs 2001 verða örnámskeið í tungumálum í boði í Bókasafni Reykjanesbæjar: Mánudaginn 3. september: Örnámskeið í spænsku, þriðjudaginn 4. september: Örnámskeið í ensku, miðvikudaginn 5. september: Örnámskeið í frönsku, fimmtudaginn 6. september: Örnámskeið í dönsku, föstudaginn 7. september: Örnámskeið í þýsku.

Fimmtudaginn 6. september: "Vits er þörf þeim er víða ratar" Málþing um mikilvægi tungumála í bókasafni Reykjanesbæjar.

*Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi.

Dæmi: Fræðsluhátíð í Hyrnutorgi í Borgarnesi, bæði föstudag og laugardag á meðan verslanir eru opnar. Skólum og stofnunum sem koma að símenntun er boðið að vera með kynningarbása þennan dag inni í verslunarmiðstöðinni. Einnig verða þar ýmsar uppákomur til skemmtunar og fróðleiks.

*Framvegis - miðstöð um símenntun í Fjölbrautaskólanum við Ármúla í Reykjavík opnuð á 20 ára afmæli skólans 7. september. Í FÁ er áhugi á að nýta reynslu landsbyggðarinnar í símenntunarmálum og starfa með stofnununum þar, ekki síst að fjarkennslumálum. Enn sem komið er stendur þó skólinn einn að stofnun Framvegis. Aðstoð við námskeiðahald er meðal þess sem Framvegis býður upp á.