BORGARRÁÐ hefur samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Ofanleitis sem felur í sér að götunni verði lokað þannig að aðkoma að bílastæðum Verslunarskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur verði einungis frá Listabraut.

Morgunblaðið greindi frá því í vor að íbúar í nágrenni skólanna hefðu þungar áhyggjur af umferðaraukningu í Ofanleiti í tengslum við stækkun skólanna.