Hafið er stundum blátt og blítt bára leikur við fjöru stein. Oft lagar það mannanna mein að mega það líta og hugsa upp á nýtt Stundum það argar og mölvar í mél miskunn hvergi gæfan flúin bænir um hjálp, þá tapast trúin og týndir menn, gista í hel.
Hafið er stundum blátt og blítt
bára leikur við fjöru stein.
Oft lagar það mannanna mein
að mega það líta og hugsa upp á nýtt
Stundum það argar og mölvar í mél
miskunn hvergi gæfan flúin
bænir um hjálp, þá tapast trúin
og týndir menn, gista í hel.
Hætta fylgir þá til sjávar er sótt.
Synir þjóðar varúð er best.
Stundum er þó minningin mest
um menn sem týndust kalda nótt.
Höfundur fæst við skriftir.