TONY Pulis var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Stoke City aðeins sólarhring eftir að George Burley hætti við á síðustu stundu að taka að sér starfið. Pulis skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Íslendingaliðið og stjórnar liðinu í fyrsta sinn í dag þegar Stoke sækir Walsall heim í ensku 1. deildinni. Þrjár vikur eru liðnar síðan Steve Cotterill sagði starfi sínu lausu hjá Stoke til að gerast aðstoðarmaður Howard Wilkinson og frá þeim tíma hafa forráðamenn Stoke leitað logandi ljósi að eftirmanni hans.
Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður Stoke, lýsti yfir ánægju sinni með ráðningu Tony Pulis á blaðamannafundi sem Stoke efndi til í gær vegna ráðningarinnar.
"Það voru margir sem sóttust eftir starfinu og eftir að hafa skoðað málin ofan í kjölinn stóð nafn Tonys upp úr. Tony er reyndur í faginu og hefur staðið sig vel. Hann hefur gott mannorð og er þekktur fyrir að ná að laða það besta fram hjá leikmönnum. Allir sem að félaginu koma hlakka til að starfa með honum og ég hvet stuðningsmenn okkar til að standa á bakvið nýja knattspyrnustjórann og liðið. Síðustu þrjár vikur hafa ekki verið léttar, hvorki fyrir félagið né stuðningsmennina, en núna verðum við að horfa fram á veginn og huga að framtíðinni," sagði Gunnar Þór.
Pulis er 44 ára gamall og lék á árum áður með Bristol Rovers. Hann hóf þjálfaraferil sinn hjá enska knattspyrnusambandinu árið 1977 þegar hann þjálfaði U-19 ára landsliðið og síðan þá hefur hann stýrt Bournemouth, Gillingham, Bristol City og Portsmouth þar sem hann var rekinn úr starfi fyrir tveimur árum.
Líki Stoke við WBA
"Ég er mjög glaður yfir því að vera kominn til Stoke. Það skiptir mig engu hvort ég var kostur númer tvö, þrjú, fjögur eða tíu. Aðalmálið er að mig langaði til að koma til Stoke sem ég tel vera mjög gott félag. Líklega koma margir til að segja að ég sé að taka að mér erfitt starf sem verði mér ekki til framdráttar en ég lít ekki þannig á hlutina. Umgjörðin í kringum klúbbinn er mjög góð, félagið á frábæra stuðningsmenn og að mörgu leyti líki ég Stoke við WBA. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að ég er að taka að mér starf sem er erfitt. Stjórnin hefur gefið mér til kynna að ekki séu til peningar til að kaupa leikmenn en það breytir því ekki að ég er bjartsýnn á að Stoke geti gert góða hluti í framtíðinni," sagði Pulis á blaðamannafundi sem Stoke efndi til í gær vegna ráðningar hans.Stoke hefur gengið illa á undanförnum vikum. Liðið hefur ekki unnið leik síðan það lagði Ipswich 22. september og er sem stendur í fjórða neðsta sæti.