ÞAÐ er ekki annað að sjá en að ró hafi færst yfir skólastarfið í Klébergsskóla. Í kennslustofum í eldri byggingu skólans sitja yngstu krakkarnir niðursokknir í verkefni og í nýju byggingunni. Þar sem skrifstofur skólans eru nú til húsa, er angandi vöffluilmur yfir öllu. Enda er ástæða til því verið er að halda upp á að hönnuðir skólans, teiknistofan arkitektur.is, hlutu á dögunum alþjóðleg verðlaun fyrir hönnun byggingarinnar.
Verðlaunin nefnast Merit Awards en það er bandaríska veftímaritið Design Share sem veitir þau. Tímaritið sérhæfir sig í umfjöllun um skólabyggingar en í umsögn dómnefndar kemur fram að skólinn þyki einstaklega vel hannaður til að mæta kennslufræði- og samfélagslegum kröfum nútímans.
Yfir kaffibolla og gómsætum vöfflum segja arkitektarnir Guðmundur Gunnarsson og Haraldur Örn Jónsson og skólastjórinn Sigþór Magnússon frá nýju byggingunni og því þróunarstarfi sem henni er ætlað að hýsa. En fyrsta spurningin lýtur þó að því hvernig framkvæmdum hafi miðað frá því í haust þegar fresta varð skólabyrjun þar sem byggingin var langt frá því hæf til þess að hýsa skólastarf.
"Það kom nýr verktaki að málinu um það leyti sem skólinn var að hefjast og hann hefur verið að reyna að kippa þessu í liðinn," segir Sigþór. "Nú er þetta komið á rétt ról og við getum verið mjög bjartsýn á að skólanum verði lokið að mestu leyti næsta haust. Það eina sem gæti hindrað það eru fjárveitingar."
Ánægð með hvað skólastarfið bjargaðist vel í haust
Þegar er búið að taka stjórnunarálmuna í notkun og tengigangur milli nýju byggingarinnar og þeirrar eldri er langt kominn. "Nú erum við að verða nokkuð sátt en fyrst og fremst erum við ánægð með hvað skólastarfið bjargaðist vel í gegnum þessar hremmingar. Það var mikill kraftur í kennurunum og við vorum mjög ánægð með samskiptin við foreldrana sem voru okkur innan handar í þessu öllu saman."Sigþór segist þó ekki síst ánægður með samskiptin við arkitektana sem hafa unnið með skólastjórnendum um þróun byggingarinnar og Guðmundur segir svolítið frá verðlaununum. "Þetta er viðurkenning fyrir hönnun þessa skóla og þeirra nýjunga sem koma fram í formi hans. Meðal annars er það þessi sýn að nota skólann sem hluta af samfélagsmiðstöð fyrir íbúana utan skólatíma þannig að það nýtist mjög vel. Þetta verður eins konar félagsheimili fyrir íbúana hérna og ég get nefnt að bókasafnið fyrir svæðið verður hér í húsinu."
Sigþór bendir á að samnýtingin nái einnig til annarra hluta skólans eins og smíðastofu, tölvustofu og annarra sérgreinastofa. "Við höfum möguleika á að nýta húsnæðið undir námskeið fyrir íbúana, þannig að þetta verði menntamiðstöð en ekki bara grunnskóli."
Áhugi á íslenskum skólabyggingum erlendis
Guðmundur segir alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir það sem vel er gert. "Það sýnir kannski að Reykjavíkurborg er að reisa góða skóla og við hér heima erum ekki aftarlega heldur framarlega í skólabyggingum þannig að menn eru jafnvel farnir að líta hingað. Það var bara í síðustu viku sem var haft samband við okkur út af öðrum skóla sem við höfum líka verið að gera, Húsaskóla, og beðnir um að senda upplýsingar um hann til Skotlands. Þannig að það er nokkur áhugi á þeim skólabyggingum sem við erum að hanna hér heima." Þá segir hann verðlaunin vissulega auka kynningu stofunnar á erlendri grund.Byggingin tengist einnig breyttum kennsluháttum í skólanum. "Við höfum verið að þróa skólastarfið, bæði með kennslu þvert á árganga og með meira einstaklingsmiðuðu námi," segir Sigþór. "Það er ekki hægt að stíga þessi skref nema maður hafi skólabyggingu sem er hönnuð fyrir það."
Hann útskýrir þetta nánar. "Ef þú ferð upp á loft og skoðar skólastofurnar sem verða næsta vetur í 8., 9. og 10. bekk þá eru engir veggir þar á milli. Þar verða þrír árgangar á sama svæði en síðan er það okkar að ákveða hvernig við skiptum þeim upp en við notum létt skilrúm til þess." Hann segir að þessi skipting verði ekki endilega milli bekkja heldur verði jafn líklegt að skiptingin verði milli stelpna og stráka eða á einhvern annan hátt.
Haraldur segir þetta ekki ósvipað eins og á nútímaskrifstofu þar sem hurðir skilja vinnufélaga ekki að. "Þetta verður opið svæði þar sem þú hefur þitt vinnusvæði og svo fylgist kennarinn bara með."
Fjórir árgangar í senn
Þetta verður þó ekki í fyrsta sinn sem slík árgangablöndun verður viðhöfð í skólanum. "Við erum búin að vera að undirbúa þessar breytingar í sex ár," segir Sigþór. "Við byrjuðum með yngstu krakkana og 1., 2., 3. og 4. bekkir eru orðnir mjög þjálfaðir í því að vinna saman, jafnvel fjórir árgangar í senn. Það er grundvöllurinn fyrir því að þau geti síðar verið á svona svæði þar sem þau verða stundum að vinna saman og stundum í hópum." Hann segir þetta einnig hafa verið innleitt á miðstiginu og næsta haust sé ráðgert að allir árangar verði komnir inn í þetta kerfi.Þá segir Sigþór að skólinn sé að tileinka sér fjölgreindarkenninguna svokölluðu, sem gerir ráð fyrir að hver nemandi búi yfir margs konar greind á mismunandi sviðum sem reynt er að láta njóta sín í náminu. Þannig fái þeir sem eru duglegir að rata að takast á við námið út frá þeim hæfileika og svo mætti lengi telja.
"Það má segja að þetta sé fyrsti skólinn þar sem farið er inn á þessar nýju brautir sem Fræðslumiðstöð er að reyna að fá fólk til að vinna eftir," útskýrir Haraldur. "Smám saman er opnað á milli kennslustofanna þannig að þessi lokaða kennslustofuhugmynd detti upp fyrir á endanum."