UNDIRBÚNINGUR fyrir Edduverðlaunahátíðina stendur nú sem hæst en verðlaunin verða afhent í fjórða sinn með viðhöfn í Þjóðleikhúsinu sunnudaginn 10. nóvember. Þórey Vilhjálmsdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Edduverðlaunanna í maí síðastliðnum. "Mér hefur þótt þetta mjög skemmtilegt. Þetta er í fyrsta skipti, sem ég geri þetta, en ég hef fylgst vel með þessu áður og farið á hátíðirnar," segir Þórey um aðdragandann. "Mér hefur fundist gaman að sjá samstöðuna í kvikmyndageiranum og hvað hann hefur náð langt á stuttum tíma. Síðustu ár hefur hann vaxið gríðarlega, sem sést á Edduverðlaununum núna. Þetta er ótrúleg gróska," segir hún.
Þórey hefur orðið vör við mikinn áhuga fólks á verðlaununum. "Fólk beið mjög spennt eftir tilnefningunum," segir hún en þær voru kynntar á fimmtudaginn. "Þetta skiptir greinilega máli. Núna er búið að byggja upp hefð fyrir hátíðinni," segir hún.
"Fyrir þá, sem eru að reyna að selja kvikmynd sína á erlendri grundu er gott að hafa stimpil heiman frá," segir Þórey og útskýrir að tilnefning eða útnefning hjálpi til við markaðssetningu erlendis. "Það hefur líka sýnt sig að að það eykst aðsókn að myndum, sem fá margar tilnefningar og hafa unnnið. Þetta er ekki síður gott fyrir heimamarkaðinn."
Að mörgu að huga
Þórey segir að mikið hafi verið lagt upp úr því að hafa áhugavert fólk til að afhenda verðlaunin á hátíðinni. "Það er fullt af þekktum einstaklingum, sem afhenda verðlaunin. Við erum rosalega ánægð með þennan frábæra hóp. Það verður gaman að sjá hvernig það kemur út á sviðinu. Þetta verður breiður hópur í þetta sinn," segir hún.Mörgu er að huga að fyrir verðlaunaafhendinguna. "Það er dagskráin, gestirnir í salnum og áhorfendurnir heima," segir Þórey en líkt og fyrri ár verður hátíðin í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
"Hátíðin sjálf verður með sama sniði og fyrr, það hefur myndast ákveðin hefð, en við erum samt að breyta útlitinu nokkuð," segir Þórey en tilgangurinn er að gefa hátíðinni ferskara yfirbragð. "Við höfum líka fengið til liðs við okkur listrænan stjórnanda, Reyni Lyngdal," útskýrir hún en hlutverk Reynis verður að huga að útliti útsendingar hátíðarinnar á sunnudaginn.
Kosið í næstu viku
Þórey útskýrir að í næstu viku, 4. til 8. nóvember, fari fram kosningar til verðlaunanna. Atkvæði almennings hafa sitt að segja og verður hægt að greiða atkvæði á Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Gilda atkvæðin 30% á móti atkvæðum Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Rúmlega 700 manns eru skráðir í akademíuna og býst Þórey við að þeim fjölgi eitthvað eins og venja er til síðustu vikuna fyrir verðlaunaafhendinguna. Sjónvarpsmaður ársins verður hinsvegar eingöngu kosinn af lesendum mbl.is. Einnig er von á hinum þekkta sjónvarpsmanni Magnúsi Magnússyni til landsins í næstu viku en hann hlýtur sérstök heiðursverðlaun á hátíðinni í ár. Meðal nýjunga á hátíðinni í ár er að veitt verða verðlaun í flokki tónlistarmyndbanda og stuttmynda.Kynningarþættir um tilnefningarnar verða sýndir í Sjónvarpinu og Stöð 2 alla næstu viku en umsjónarmaður þáttanna er Brynja X. Vífilsdóttir.
ingarun@mbl.is