MIKIÐ hefur verið um innbrot í umdæmi lögreglunnar í Keflavík að undanförnu. Það sem af er árinu hefur verið tilkynnt um 36 innbrot og þjófnaði ýmiskonar.

MIKIÐ hefur verið um innbrot í umdæmi lögreglunnar í Keflavík að undanförnu. Það sem af er árinu hefur verið tilkynnt um 36 innbrot og þjófnaði ýmiskonar.

Lögreglan vill koma þeirri ábendingu til fólks að það gangi betur frá eigum sínum, skilji til dæmis ekki við bifreiðar sínar ólæstar og skilji ekki eftir verðmæti í bifreiðunum. Lögreglan mun verða með hert eftirlit hvað þetta varðar, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á Netinu.