STARFSEMI hefst í ævintýrahúsinu Púlsinum í Sandgerði með opnu húsi í dag, milli klukkan 14 og 17. Námskeið hefjast síðan samkvæmt dagskrá á mánudag.

STARFSEMI hefst í ævintýrahúsinu Púlsinum í Sandgerði með opnu húsi í dag, milli klukkan 14 og 17. Námskeið hefjast síðan samkvæmt dagskrá á mánudag.

Hjónin Marta Eiríksdóttir og Friðrik Þór Friðriksson hafa unnið að undirbúningi Púlsins undanfarna mánuði með því að gera upp gamla kaupfélagshúsið í Sandgerði og skipuleggja fjölbreytt námskeið.

Upplýsingar um námskeiðin er að finna á heimasíðu Púlsins, www.pulsinn.is.