GRÝTUBAKKAHREPPUR hefur átt í viðræðum við Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars hf. á Akureyri, um að fyrirtækið byggi fjórar nýjar íbúðir á Grenivík næsta sumar.

GRÝTUBAKKAHREPPUR hefur átt í viðræðum við Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars hf. á Akureyri, um að fyrirtækið byggi fjórar nýjar íbúðir á Grenivík næsta sumar. Að sögn Guðnýjar Sverrisdóttur sveitarstjóra er hugmyndin að byggð verði tvö parhús, með fjögurra og fimm herbergja íbúðum við Lækjarvelli.

Guðný sagði jafnframt að hreppurinn myndi skuldbinda sig til að kaupa tvær íbúðir en að hinar tvær yrðu seldar á frjálsum markaði. Hún sagði að mikið væri spurt eftir húsnæði á Grenivík og margir á biðlista eftir leiguhúsnæði. "Við erum í uppsveiflu og hér ríkir bjartsýni," sagði Guðný.