SMÁVÆGILEG aukning varð í verslun með dagvöru fyrir síðustu jól samanborið við jólin þar á undan samkvæmt smásöluvísitölu Samtaka verslunar og þjónustu. Sala á matvöru og annarri dagvöru jókst um 0,3% í desember sl.
SMÁVÆGILEG aukning varð í verslun með dagvöru fyrir síðustu jól samanborið við jólin þar á undan samkvæmt smásöluvísitölu Samtaka verslunar og þjónustu. Sala á matvöru og annarri dagvöru jókst um 0,3% í desember sl. miðað við desember árið áður að teknu tilliti til breytinga á verðlagi á þessu tímabili. Veltuaukning varð einnig á áfengissölu eða um 1,7% ef borin eru saman sömu tímabil. Fram kemur í smásöluvísitölunni að nánast engin breyting hefur orðið í veltu lyfjaverslana milli síðustu fjögurra mánaða ársins.