STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson handknattleiksdómarar verða í eldlínunni í dag þegar þeir dæma viðureign Króatíu og Spánar í undanúrslitum á HM í Portúgal. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir dómarar dæma leik í undanúrslitum á HM karla.
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson handknattleiksdómarar verða í eldlínunni í dag þegar þeir dæma viðureign Króatíu og Spánar í undanúrslitum á HM í Portúgal. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir dómarar dæma leik í undanúrslitum á HM karla. Kjartan Steinback verður eftirlitsmaður á hinum undanúrslitaleiknum en í honum eigast við Frakkar og Þjóðverjar.