[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
HLUTIRNIR gerast hratt í ástarmálum stjarnanna, svo ekki sé talað um þegar Britney blessuð Spears er annars vegar.

HLUTIRNIR gerast hratt í ástarmálum stjarnanna, svo ekki sé talað um þegar Britney blessuð Spears er annars vegar. Ekki var fyrr búið að flytja af því fregnir að hún væri byrjuð með nýjasta hjartaknúsara hvíta tjaldsins Colin Farrell en nýjustu stórfregnir herma að þau séu hætt saman. Sambandið varði því í fjóra daga. Sem betur fer voru þau ekkert að hafa fyrir því að setja upp hringa ... Bandaríski leikarinn Dennis Quaid er sagður hafa beðið hinnar tvítugu Önnu Poche .

Leikarinn, sem er 48 ára, skildi við Hollywood-leikkonuna Meg Ryan fyrir tveimur árum eftir að upp komst um samband hennar og leikarans Russels Crowe . Samband þeirra varði þó stutt og er Crowe nú sagður vera að undirbúa brúðkaup sitt og æskuástar sinnar, Danielle Spencer . Ryan er hins vegar sögð hafa þrábeðið Quaid um að gefa sambandi þeirra annað tækifæri en án árangurs.

Ryan og Quaid hafa bæði neitað að tjá sig um samband hennar við Crowe en Quaid hefur sagt að tíður aðskilnaður þeirra hafi grafið undan hjónabandinu auk þess sem hann hafi átt erfitt með að sætta sig við að vera sífellt í skugga konu sinnar ...