SUNNA Gestsdóttir bætti Íslandsmetið í langstökki innanhúss á Reykjavíkurmótinu sem haldið var í Egilshöll í fyrrakvöld. Hún stökk 6,08 metra og bætti eigið met um 5 sentímetra en hún stökk 6,03 metra á móti í Noregi fyrir tæplega ári síðan.

SUNNA Gestsdóttir bætti Íslandsmetið í langstökki innanhúss á Reykjavíkurmótinu sem haldið var í Egilshöll í fyrrakvöld. Hún stökk 6,08 metra og bætti eigið met um 5 sentímetra en hún stökk 6,03 metra á móti í Noregi fyrir tæplega ári síðan. Sunna keppti sem gestur á mótinu en hún er í Ungmennasambandi Skagafjarðar.

Fanney Björk Tryggvadóttir úr ÍR bætti eigið Íslandsmet í stangarstökki meyja um fimm sentímetra á mótinu þegar hún vippaði sér yfir 3,15 metra.