VAL á íþróttamanni Þórs fyrir árið 2002 verður kunngjört í hófi í Hamri, félagsheimili Þórs í dag, laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00. Við sama tækifæri verður kunngjört val á bestu íþróttamönnum einstakra deilda innan félagsins.

Átta íþróttamenn félagsins, tveir frá hverri deild, hlutu útnefningu að þessu sinni. Þau sem fengu tilnefningu eru; Aigars Lazdins, handbolti, Ásta Árnadóttir, knattspyrna, Helgi Þór Leifsson, taekwondo, Hermann Daði Hermannsson, körfubolti, Jóhann Þórhallsson, knattspyrna, Óðinn Ásgeirsson, körfubolti, Páll Viðar Gíslason, handbolti og Rut Sigurðardóttir, taekwondo.

Þórsarar og aðrir velunnarar félagsins á öllum aldri eru hvattir til að mæta í Hamar í dag, fylgjast með útnefningunni og þiggja veitingar að henni lokinni.