"Af því tók mánaðrinn heiti."
"Af því tók mánaðrinn heiti."
KOSNINGAR nálgast óðfluga og með þeim skemmtilegar hugmyndir sums fólks um hvernig peningum annarra skyldi eytt. Sú nýjasta er stofnun sjóðs til að aðstoða íslenska tónlistarmenn við að koma sér á framfæri erlendis.

KOSNINGAR nálgast óðfluga og með þeim skemmtilegar hugmyndir sums fólks um hvernig peningum annarra skyldi eytt. Sú nýjasta er stofnun sjóðs til að aðstoða íslenska tónlistarmenn við að koma sér á framfæri erlendis. Nú skal það viðurkennt að hugmyndin er hvorki sú dýrasta né heimskulegasta ef horft er til þess hvaða fyrirbæri Ríkið hefur hingað til styrkt til að verða flutt úr landi. Upphæðirnar sem um ræðir yrðu til dæmis áreiðanlega ekki háar miðað við þær krónur sem íslenskir þegnar eyða til að sannfæra sjálfa sig um að þeirra landbúnaðarvörur séu betri en aðrar. Né heldur yrði hugmyndin úr takti við þann vana starfsmanna opinberra stofnana að nota peninga almennings til að kaupa listaverk eftir kunningja sína fyrir fleiri milljónir króna. [...]

Eða hvernig er það? Ég veit ekki betur en að íslenskum tónlistarmönnum hafi hingað til tekist að koma sér á framfæri erlendis þrátt fyrir skort á sérstökum útflutningssjóðum. Björk, Sigur Rós og Quarashi eru sönnun þess.

En er þessi árangur kannski aðeins skuggi af því sem hefði orðið ef sjóðsins hefði notið við. Hefði Selma kannski meikað það hefði útflutningssjóðurinn verið til staðar? Væru Mezzoforte á barmi heimsfrægðar ef sjóðsins hefði notið við? Mundu Bubbleflies fá lag í Trainspotting með stuðningi hans? Ég leyfi mér að efast...

Ég held að allir áhugamenn um umræddan sjóð geta viðurkennt að það er á engan hátt lífsnauðsynlegt fyrir íslenskt samfélag að hann verði til. [...]

Auðvitað er það kjörið að íslenskir tónlistarframleiðendur tækju höndum saman til að styrkja innlenda framleiðslu og útflutning hennar. Ef að Ríkið vill styrkja þá í þeirri viðleitni getur það gert það með afar einföldum hætti. Lækkað skatta. [...]

Það svo annað mál að þetta nöldur mitt mun ekki skila miklu nema kannski ásökunum um skammsýni og bréfum frá fólki sem telur að "maður lifi ekki á brauðinu einu saman". Yfirgnæfandi líkur virðast á því að útflutningssjóður tónlistarlífsins taki til starfa innan skamms alveg óháð þessum skrifum. Ég verð því að takmarka ósk mína um að þingmennirnir haldi að sér höndum við eyðsluna og fari ekki á dæmigert kosningafyllerí.

Pawel Bartoszek

Deiglan

www.deiglan.com