OVALLA Trading hefur selt 1,6% af hlut sínum í Tryggingamiðstöðinni og á nú 9,7% í fyrirtækinu en átti áður 11,3%. Viðskiptin áttu sér stað á fimmtudag og miðað við gengi dagsins var söluverðið tæpar 150 milljónir króna.

Eigendur Ovalla Trading eru Gaumur Holding, sem á 85% í félaginu, og Austursel, með 15% hlut. Gaumur er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, og Austursel er í eigu Hreins Loftssonar.