LISTASAFN Sigurjóns Ólafssonar býður tónlistarmönnum að sækja um þátttöku í þriðjudagstónleikum safnsins sem haldnir verða í júní, júlí og ágúst. Umsóknir skulu hafa borist í síðasta lagi 1.

LISTASAFN Sigurjóns Ólafssonar býður tónlistarmönnum að sækja um þátttöku í þriðjudagstónleikum safnsins sem haldnir verða í júní, júlí og ágúst. Umsóknir skulu hafa borist í síðasta lagi 1. febrúar með upplýsingum um flytjendur, kjörtíma viðkomandi tónleika og drögum að efnisskrá. Valið verður úr aðsendum umsóknum og öllum svarað að vali loknu.

Umsóknir sendist til Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Reykjavík eða í tölvupósti lso@lso.is.