[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
EINHVER magnaðasti mynddiskapakki sem fáanlegur er hérlendis er þriggjadiska pakki með öllum Aftur til framtíðar-myndunum óborganlegu.

EINHVER magnaðasti mynddiskapakki sem fáanlegur er hérlendis er þriggjadiska pakki með öllum Aftur til framtíðar-myndunum óborganlegu. Við erum ekkert að tala um neitt venjulegan pakka hér því auk þess að innihalda sjálfar myndirnar þrjár í nýrri og betri útgáfu, þá hefur hann að geyma hvorki meira né minna en 10 klukkustundir af aukaefni.

Það var aldrei nein spurning hvort fyrsta myndin ætti eftir að slá í gegn þegar hún var frumsýnd 1985. Hugmyndin, að senda skólastrák aftur í tímann þar sem hann lendir í að þurfa að koma foreldrum sínum saman svo hann og systkini hans hverfi ekki, var skotheld og einhver sú útpældasta sem fram hafði komið í háa herrans tíð. Og ekki áttu höfðingjarnir sem að myndinni stóðu eftir að klúðra henni, Robert Zemeckis, sem þá var nýbúinn að gera smellinn Romancing The Stone, í leikstjórastólnum og Steven Spielberg framleiðandi. Það er mögnuð staðreynd að á tímabili leit út fyrir að myndin yrði aldrei gerð, vegna þess að það hafði enginn stjóranna í Hollywood trú á hugmyndinni, ekki fyrr en Spielberg heyrði hana. Og það var þessum stórhuga félögum líkt að taka sig síðan til og gera, fyrstir allra í bíósögunni, tvær framhaldsmyndir í einu, sem voru síðan frumsýndar með hálfsárs millibili, jólin 1989 og sumarið 1990.

Það er skemmst frá að segja að þríleikur þessi hefur nákvæmlega ekkert elst, er ennþá jafnhugmyndaríkur og ferskur, en þó fyrst og síðast stórskemmtilegur - þannig að tvímælalaust er um að ræða best heppnuðu ævintýramyndir sem Hollywood hefur getið af sér. Það sem síðan gerir mynddiskana ennþá eigulegri er að það virðist vera hægt að horfa á myndirnar endalaust oft, aldrei fær maður leið á þeim.

Og svo er það aukaefnið á mynddiskunum. Það er náttúrlega ekki nema fyrir forfallna aðdáendur að ætla sér að eyða 10 tímum í að horfa á viðtöl og annað ítarefni um einhverjar bíómyndir, en þessir forföllnu er einmitt mjög margir í tilfelli Aftur til fortíðar-myndanna, en þær hafa notið mikilla og jafnra vinsælda allt síðan þær komu út. Fyrir þá ætti allt aukaefnið að vera himnasending. Pakkinn er þannig gerður að aukaefninu er skipt í þrennt, fyrir hverja mynd. Með öllum myndum er ný og athyglisverð heimildarmynd um gerð myndarinnar, baktjaldaatriðum og viðtölum við leikara og tökulið. Einnig fylgja þeim öllum óborganleg atriði sem klippt voru burt, vegna mistaka, eða einfaldlega vegna þess að þau voru ekki talinn hentug, fyrir eina eða aðra ástæðu. Spjall leikstjórans Zemeckis og meðhöfundar hans Bobs Gales sem hægt er að hlýða á á meðan myndin er í gangi er og mjög fróðlegt. Þar fær maður loks botn í ýmsar sögur sem á kreiki hafa verið í kringum myndirnar, eins og t.d. hvers vegna hætt var skyndilega við að láta Eric Stoltz leika hlutverk Marty McFlys og hvers vegna Crispin Glover, sem leikur George McFly, kemur svo lítið við sögu í framhaldsmyndunum. Ennþá skemmtilegra er þó að horfa á myndina með skriflegum útskýringum sem dúkka upp, líkt og í tónlistarþættinum vinsæla Pop-up Video á VH1 tónlistarstöðinni. Þar koma fram ótrúlegustu staðreyndir.

Einnig er meðal aukaefnis að finna upprunalegu auglýsingastiklurnar, handritsrissur, ljósmyndir og tónlistarmyndbönd.

Allar eru myndirnar með breiðtjaldsvalmöguleika og dts-heimabíókerfi.

Skarphéðinn Guðmundsson

Back to the Future - Trilogy fæst hjá öllum helstu mynddiskasölum á landinu.

Höf.: Skarphéðinn Guðmundsson