JEPPI valt er hann rann út af Suðurlandsvegi í Svínahrauni í gær. Hjón voru í bílnum og voru þau bæði með öryggisbelti. Ökumann sakaði ekki en farþeginn þurfti að fara á sjúkrahús og lék grunur á að hann væri handleggsbrotinn.

JEPPI valt er hann rann út af Suðurlandsvegi í Svínahrauni í gær. Hjón voru í bílnum og voru þau bæði með öryggisbelti.

Ökumann sakaði ekki en farþeginn þurfti að fara á sjúkrahús og lék grunur á að hann væri handleggsbrotinn.

Jeppinn rann á ísingu og lenti þannig utan vegar. Hann skemmdist mikið og þurfti að draga hann af vettvangi.