Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms í Borgarnesi.
Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms í Borgarnesi.
Þrátt fyrir að Valur Ingimundarson verði 41 árs gamall í þessari viku er hinn reyndi körfuknattleiksmaður enn að leika í efstu deild - og má jafnframt segja að hann sé að leika gegn "sínum vilja" ef svo má að orði komast.

Þrátt fyrir að Valur Ingimundarson verði 41 árs gamall í þessari viku er hinn reyndi körfuknattleiksmaður enn að leika í efstu deild - og má jafnframt segja að hann sé að leika gegn "sínum vilja" ef svo má að orði komast. Valur stundar nám við Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann er að læra málaraiðn og auk þess þjálfar hann körfuknattleikslið Skallagríms í Borgarnesi en sl. haust var liðið skráð til leiks í næstefstu deild en þáði sæti í úrvalsdeild eftir að Þór frá Akureyri helltist úr skaptinu rétt áður en Íslandsmótið átti að hefjast. Gengi Skallagríms hefur verið upp og ofan í vetur en þegar Valur var tekin tali sl. föstudag hafði liðið lagt KR að velli í Borgarnesi með minnsta mun, 86:85, og var þetta þriðji sigur liðsins í vetur.

Valur var ánægður með sigurinn en var hinsvegar ekki sáttur við sitt framlag í leiknum.

"Ég er búin að vera veikur í tvær vikur og gat ekki neitt í þessum leik. Ástandið var orðið þokkalegt fyrir nokkrum vikum og ég var að leika ágætlega en ég er nánast á byrjunarreit núna," sagði Valur en hann hefur leikið 397 leiki í efstu deild með Njarðvík, Tindastól og Skallagrím. Aðeins fyrrum félagi hans frá Njarðvík, Teitur Örlygsson, hefur leikið fleiri leiki eða 400.

Valur sagði tímabilið verið tímabil endalausra breytinga á leikmannahóp liðsins sem átti í raun að leika í 1. deild en ekki þeirri efstu. "Það er búið að vera mikið rót á leikmönnum sem hafa ýmist hætt eða farið og aðrir hafa komið í staðinn. Slíkt rót veldur því að liðið getur aldrei náð neinni dýpt í vörn eða sókn. Það er margt sem við þurfum að geta gert mun betur, sagði Valur sem var ráðinn til starfa til þess að hefja uppbyggingu á "nýju liði" í Borgarnesi í 1. deild. "Ég gerði samning til tveggja ára og ætlaði að vera með liðið eitt ár í 1. deild og það síðara í úrvalsdeild. Dvölin í 1. deild var afar stutt og nú er markmiðið hjá okkur að halda sæti okkar í deildinni. Það er afar góður andi í þessum hóp þrátt fyrir það sem gengið hefur á í vetur og tímabilið er búið að vera skemmtilegt," sagði Valur sem keyrir á milli Borgarness og Reykjavíkur nánast daglega.

"Er ósáttur við að þurfa að spila"

Eins og áður segir er Valur enn að leika í efstu deild en hann lék sinn fyrsta leik með Njarðvík árið 1979 en hann lagði áherslu á orð sín þegar hann sagði að hann vildi í raun ekki vera að leika með liðinu í dag og leikjafjöldi í efstu deild skipti hann engu máli.

"Ég er í rauninni mjög ósáttur við að vera enn að spila í efstu deild. Reynslan nýtist manni vel á þessum aldri þar sem maður hleypur ekki mjög hratt eða stekkur hátt. Það vantar "stóra" leikmenn í okkar lið og ég þurfti að leysa það með því að spila sjálfur. Ég er því aðeins að reyna hjálpa liðinu en ég hef aldrei hugsað um leikjafjöldann. Á meðan strákarnir hafa gaman af því að leika með mér og ég með þeim er þetta í lagi en ég er aðeins til "bráðabirgða" í þessu liði.

Valur hefur eins og áður segir leikið og þjálfað í efstu deild í rúma tvo áratugi og var hann sammála því að körfuknattleikshreyfingin þyrfti að fara í naflaskoðun á sinni starfssemi. "Menn þurfa að setjast niður og ræða með opnum huga um stöðu deildarinnar og um íslensku leikmennina. Það er mitt mat að við eigum of fáa leikstjórnendur miðað við hve lágvaxnir íslenskir leikmenn eru," segir Valur og leggur til að erlendir leikmenn verði ekki leyfðir í íslenskum liðum í nokkur misseri - þrátt fyrir að þrír slíkir séu í hans röðum þessa stundina.

"Íslendingar taki meiri ábyrgð"

"Mér finnst að íslenskir leikmenn þurfi að taka meiri ábyrgð í sínum liðum. Ég naut góðs af því sjálfur að spila í úrvalsdeildinni í sjö ár þar sem útlendingar voru bannaðir. Á þeim tíma þurfti maður að taka af skarið og taka afleiðingunum, Teitur Örlygsson, Guðjón Skúlason og Jón Kr. Gíslason nutu einnig góðs af þessu banni á sínum tíma," segir Valur sem einokaði efsta sætið í stigaskorun á þessum tíma er hann lék með Njarðvík. "Mér finnst vanta þennan þátt í íslenska leikmenn í dag að þeir þori og vilji framkvæma hlutina sjálfir og hafi óbilandi trú á því að þeir geti gert það sem þeir geta. Þróunin hefur verið sú að liðin hafa tekið erlenda leikmenn til þess að stoppa í götin til þess að geta verið með í baráttunni um titlana en ég tel að það þurfi að byrja á því að banna útlendinga í einhvern tíma."

Valur taldi keppnisfyrirkomulagið ágætt eins og það er í dag og vildi ekki leggja niður úrslitakeppnina. "Mótið sjálft er ekki vandamálið - það eru leikmennirnir, en þeir þurfa að fá tækifæri til þess að láta ljós sitt skína og axla ábyrgð," sagði Valur Ingimundarson en hann komst ekki á blað í leiknum gegn KR sem er óvanalegt en mest hefur hann skorað 29 stig í leik á þessum vetri, gegn Hamarsmönnum í Hveragerði.

Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson

Höf.: Sigurð Elvar Þórólfsson