EITT elsta og virtasta dreifingarfyrirtæki Bretlands, Artificial Eye, hefur tryggt sér sýningarréttinn á Nóa albínóa, á Bretlandseyjum. Þar með hefur verið gengið frá dreifingarsamningum á öllum helstu bíómörkuðum heimsins.

EITT elsta og virtasta dreifingarfyrirtæki Bretlands, Artificial Eye, hefur tryggt sér sýningarréttinn á Nóa albínóa, á Bretlandseyjum.

Þar með hefur verið gengið frá dreifingarsamningum á öllum helstu bíómörkuðum heimsins.

Myndin var á markaði á Berlínarhátíðinni sem lauk um helgina og var gríðarlegur áhugi fyrir henni, sem kom berlega í ljós þegar myndin var sýnd. Færri komust að en vildu á þá sýningu og hefur kvikmyndavefurinn asgrimur.is eftir Þóri Snæ Sigurjónssyni eins framleiðenda myndarinnar, að hann hafi meira að segja sjálfur átt í mesta basli með að fá sæti og menn hafi beitt ótrúlegustu brögðum til að komast að.