RAGNA Ingólfsdóttir úr TBR varð um helgina þrefaldur Reykjavíkurmeistari í badminton, lagði alla mótherja sína í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik. Kínverjinn Lin Guang Yun varð Reykjavíkurmeistari í einliðaleik karla.

Ragna lagði Katrínu Atladóttur í úrslitum í einliðaleik kvenna en Lin Guang vann Njörð Ludvigsson í karlaflokki.

Með Rögnu í tvíliðaleik lék Katrín og unnu þær Brynju Pétursdóttur og Vigdísi Ásgeirsdóttur í úrslitum og Njörður og Ragna unnu Magnús Helgason og Tinnu Helgadóttur í tvenndarleik