Akureyrarliðin Þór og KA mætast í úrvalsdeildinni í handknattleik í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 26. febrúar, kl. 20. Þórsarar unnu síðustu viðureign liðanna í deildinni með einu marki.

Akureyrarliðin Þór og KA mætast í úrvalsdeildinni í handknattleik í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld, miðvikudagskvöldið 26. febrúar, kl. 20. Þórsarar unnu síðustu viðureign liðanna í deildinni með einu marki. Gera má ráð fyrir að KA-menn hyggi á hefndir og um hörkuleik verði að ræða en stemningin er jafnan góð þegar liðin mætast.