EKKERT verður af því að Damon Johnson körfuknattleiksmaður fari frá Keflavík til gríska félagsins Panellinios.

EKKERT verður af því að Damon Johnson körfuknattleiksmaður fari frá Keflavík til gríska félagsins Panellinios. Félögin komust ekki að samkomulagi um félagaskipti hans en á heimasíðu Keflavíkur kemur fram að gríska félagið hafi ekki viljað greiða uppsett verð fyrir Damon. Hann verður því með Keflvíkingum til loka keppnistímabilsins.

Damon Johnson, sem fékk íslenskan ríkisborgararétt fyrir áramótin, hefur skorað 27,5 stig að meðaltali fyrir Keflvíkinga í vetur en hann hefur spilað alla 19 leiki þeirra í úrvalsdeildinni.