KRAKKARNIR á leikskólanum Arnarsmára í Kópavogi kunna handtökin við tölvurnar enda er tölvuvinna hluti af daglegu brauði þeirra á leikskólanum.

KRAKKARNIR á leikskólanum Arnarsmára í Kópavogi kunna handtökin við tölvurnar enda er tölvuvinna hluti af daglegu brauði þeirra á leikskólanum.

Arnarsmári hefur farið af stað með þróunarverkefni um tölvunotkun barna í tengslum við gerð áætlunar um tölvuvæðingu leikskóla Kópavogs. Faglegur hluti hennar var nýlega samþykktur í leikskólanefnd bæjarins.

Á myndinni sjást þau Stefanía Katrín, Sandra Kristín og Gísli Snær, sem öll verða sex ára á þessu ári, vinna saman við snertiskjá. Það vefst ekki hið minnsta fyrir þeim hvernig nota á þetta nútímalega tæki.