Amy og Maxine á góðri stundu.
Amy og Maxine á góðri stundu.
SKJÁR einn hefur um hríð sýnt þættina Emma dæmir eða Judging Amy . Um þá leikur þægileg, næsta barnslega einlæg ára og það er erfitt annað en að hrífast af hinni réttsýnu Amy og móður hennar, Maxine, sem er enn réttsýnni ef eitthvað er.
SKJÁR einn hefur um hríð sýnt þættina Emma dæmir eða Judging Amy. Um þá leikur þægileg, næsta barnslega einlæg ára og það er erfitt annað en að hrífast af hinni réttsýnu Amy og móður hennar, Maxine, sem er enn réttsýnni ef eitthvað er. Þættirnir eru nú að renna sitt skeið á Skjánum og því rétt að spenna greipar og vonast eftir nýjum skammti af Emmu sem allra fyrst. Um þessar mundir er Amy að kljást við barnsföður sinn, Michael, og aðstoðarmaður Amy, Bruce Van Exel, þarf að mæta fyrir rétt. Talandi um Brúsa ... hvenær ætlar ástarneistinn að kvikna á milli hans og Amy?!