Halldór Blöndal
Halldór Blöndal
ÁRLEGUR samráðsfundur norrænna þingforseta verður haldinn í Reykjavík dagana 26.-28. febrúar.

ÁRLEGUR samráðsfundur norrænna þingforseta verður haldinn í Reykjavík dagana 26.-28. febrúar. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, mun taka á móti starfssystkinum sínum frá Norðurlöndunum, Ivari Hansen, forseta danska þingsins, Riittu Uosukainen, forseta finnska þingsins, Jørgen Kosmo, forseta norska þingsins, og Birni von Sydow, forseta sænska þingsins.

Á meðal umræðuefna á fundi þingforsetanna er alþjóðlegt samstarf þjóðþinga, norræn sýn á stækkun Evrópusambandsins, samstarf þingnefnda norrænu þinganna og öryggismál í þingunum.

Á meðan norrænu þingforsetarnir dvelja hér á landi munu þeir meðal annars skoða handritasýningu í Þjóðmenningarhúsinu, heimsækja Íslenska erfðagreiningu og sækja tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands, segir í fréttatilkynningu.