[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
ÞAÐ er annar Hringur en sá "eini" kominn á topp íslenska bíólistan. Þessi er af japönsku bergi brotinn og er hrollvekja af hryllilegra taginu.

ÞAÐ er annar Hringur en sá "eini" kominn á topp íslenska bíólistan. Þessi er af japönsku bergi brotinn og er hrollvekja af hryllilegra taginu. Á frummálinu heitir hún The Ring og er endurgerð japönsku myndarinnar Ringu frá árinu 1998, myndar sem fór sigurför um Asíu og hefur notið mikillar hylli þeirra sem fylgjast með jaðrinum í kvikmyndabransa heimsins.

Endurgerðin, sem skartar ensk/áströlsku leikkonunni Naomi Watts og bandaríska leikaranum Martin Henderson í aðalhlutverkum, sló mjög óvænt í gegn er hún var sýnd í Bandaríkjunum á síðasta ári og virðist sem hún ætli að leika sama leik hér á landi. Myndin var frumsýnd á föstudaginn var og tókst nokkuð auðveldlega að tryggja sér toppsæti tekjulistans, enda fóru töluvert fleiri á myndina en aðrar sem í boði voru, en rétt rúmlega 4 þúsund manns sáu myndina.

"Við erum "hryllilega" ánægðir með þessi sterku viðbrögð," segir Christof Wehmeier hjá Sambíóunum. "Við byrjuðum að forsýna myndina fyrir tveimur vikum og ég tel að það hafi skilað sínu. Jákvætt umtal um myndina hefur sennilega farið um eins og sinueldur meðal fólks. Maður heyrir mikið talað um hana." Þess má geta að með forsýningum hafa alls rúmlega 5 þúsund sé Hringinn. Christof segist hafa sterka trú á að myndin eigi eftir að halda haus á næstu vikum, enda hafi það sýnt sig að yfirnáttúrulegar hrollvekjur ganga jafnan vel í landann samanber Sjötta skilningarvitið (The Sixth Sense) og Hinir (The Others).

Toppmyndin frá því um síðustu helgi, Tveggja vikna uppsagnarfrestur, fellur aðeins um eitt sæti en tæplega 10 þúsund hafa séð myndina.

Hinar myndirnar tvær sem frumsýndar voru á föstudag koma síðan í þriðja og fjórða sæti, Gengi New York-borgar og Skógarlíf 2. Báðar eiga vafalítið eftir að verða seigar á komandi vikum, því hin fyrrnefnda er tilnefnd til 10 Óskarsverðlauna og hin síðarnefnda er barnamynd, en barnamyndir ganga jafnan lengur en aðrar myndir.