Í LISTASAFNI Reykjavíkur - Hafnarhúsi verður listasmiðja fyrir 6-9 ára börn kl. 10.30-15 á morgun, laugardag.

Í LISTASAFNI Reykjavíkur - Hafnarhúsi verður listasmiðja fyrir 6-9 ára börn kl. 10.30-15 á morgun, laugardag.

Þátttakendur fá leiðsögn sem hentar þeirra aldri, þau upplifa sig í rými verkanna, fræðast um sjónskynjun og blekkingar augans og búa sér til áhöld til að gera eigin tilraunir með ljós og rými. Skráning er í Hafnarhúsinu eða fraedsludeild@rvk.is.