EINS og sagt var frá í gær mun Sjónvarpið sýna seinni þáttaröðina af Skrifstofunni í enda mars.

EINS og sagt var frá í gær mun Sjónvarpið sýna seinni þáttaröðina af Skrifstofunni í enda mars. Þátturinn fékk tvenn verðlaun á liðinni Golden Globe-hátíð, sem besti gamanþátturinn auk þess sem aðalleikarinn, Ricky Gervais, var valinn besti gamanleikarinn.

Nú hefur verið staðfest að fyrri þáttaröðin verður endursýnd, og verður fyrsti þátturinn sýndur miðvikudaginn 4. febrúar, kl. 21.15. Segja má að þegar þættirnir voru sýndir fyrst hafi þeir farið framhjá mörgum en þessi frábæri árangur á Golden Globe hefur vakið almennan áhuga á þáttunum, sem innvígðir segja að sé eitt það besta sem Bretar hafi lengi gert í grínframleiðslu.