Í lauslegri þýðingu: Kæru vinir Ég sendi ykkur bréf fyrir nokkru en hef enn ekki fengið svar og skrifa ykkur því aftur. Ég heiti Jörgen Sörensen. Ég er 46 ára. Ég er formaður Rod Stewart-aðdáendaklúbbsins hér á Íslandi.
Í lauslegri þýðingu:

Kæru vinir

Ég sendi ykkur bréf fyrir nokkru en hef enn ekki fengið svar og skrifa ykkur því aftur. Ég heiti Jörgen Sörensen. Ég er 46 ára. Ég er formaður Rod Stewart-aðdáendaklúbbsins hér á Íslandi. Ég hef notað Schweis-formula vörur í mörg ár, í staðinn fyrir sápu. Ég nota bara hárnæringuna fyrir hárin. (Hún gerir hárin svo mjúk). En núna hef ég líka fundið ný not fyrir hárnæringuna. Fyrir nokkrum vikum kláraðist tannkremið hjá mér. Ég hafði ekki burstað tennurnar í marga daga og var orðinn andfúll. Þannig að ég reyndi að bursta tennurnar með hárnæringunni. Og það var frábært! Reyndar er það svo gott að ég er hættur að nota tannkrem. Tennurnar eru flottar og hvítar og ég anda frá mér fersku lofti. Ég hef líka komist að því að hárnæringin virkar mjög vel á kaffi- og tóbaksbletti. Kærar þakkir. Ég vildi bara láta ykkur vita. Ég hef reynt að bursta tennurnar með sjampói en það var ekki nógu gott. (Bragðið var skrýtið).

Í einlægni,

Jörgen Sörensen

AÐDÁENDAKLÚBBI RODS STEWARTS

Svar:

Við metum það mikils að þú skulir hafa haft samband varðandi áhuga þinn á vörum okkar...þú virðist hafa fundið margs konar not fyrir vöru okkar...þótt þessar aðferðir við notkun séu ekki í samræmi við það hvernig varan var hönnuð, ef þær virka fyrir þig...gangi þér vel! Þakka þér fyrir viðbrögðin!