Fé af fjalli | Fimm kindur heimtust í vikunni af fjalli við Loðmundarfjörð. Höfðu bændur úr Borgarfirði eystra farið á vélsleðum yfir og rákust í ferð sinni á ær með stálpaða tvílembinga úr Hjaltastaðarþinghá og tvö lömb úr næstu sveit.
Fé af fjalli | Fimm kindur heimtust í vikunni af fjalli við Loðmundarfjörð. Höfðu bændur úr Borgarfirði eystra farið á vélsleðum yfir og rákust í ferð sinni á ær með stálpaða tvílembinga úr Hjaltastaðarþinghá og tvö lömb úr næstu sveit. Féð hefur gengið sjálfala í vetur og var þokkalega haldið þrátt fyrir kulda og fannfergi vetrarins.