Stórsveitin U2 gerir sig heimakomna í Tónlistarland með síðari safnplötu sinni.
Stórsveitin U2 gerir sig heimakomna í Tónlistarland með síðari safnplötu sinni. Spekúlant og "list"-fræðingur þessara síðna gerir því skóna að ástæðan sé sú, að hingað kemur bráðum sveitin Die Herren, sem sérhæfir sig í tónlist þessara sona Írlands og spila þeir hérlendis í næstu viku. Þó að Die Herren séu kannski ekki "Even Better Than The Real Thing" þá þykja þeir komast ansi nálægt því. En síðan getur ástæðan fyrir góðu gengi safnplötunnar einfaldlega legið í stöðugum og góðum vinsældum þessarar fremstu rokksveitar heims.