Fæddur: 1. september 1983 í Utrera á Spáni. *1994: Gekk til liðs við Sevilla 10 ára og byrjaði að æfa og leika með unglingaliðum félagsins. *1998: Skrifaði undir sinn fyrsta samning við Sevilla, 15 ára.
Fæddur: 1. september 1983 í Utrera á Spáni.

*1994: Gekk til liðs við Sevilla 10 ára og byrjaði að æfa og leika með unglingaliðum félagsins.

*1998: Skrifaði undir sinn fyrsta samning við Sevilla, 15 ára.

* 2000: Lék sinn fyrsta leik með Sevilla 16 ára - á La Romareda gegn Zaragoza 30. janúar. Skrifaði undir samning til ársins 2008.

*2001: Lék sinn fyrsta 1. deildarleik með Sevilla gegn Barcelona, 17 ára. Skoraði sitt fyrsta deildarmark í sínum öðrum leik - gegn Espanyol. Skoraði átta mörk og var markahæsti leikmaður Sevilla á sínu fyrsta keppnistímabili. Lék bæði með 19 ára og 21 árs liði Spánverja

*2002: Var byrjaður að leika lykilhlutverk með Sevilla og varð markakóngur liðsins með 9 mörk. Mörg fræg félög voru byrjuð að sýna honum áhuga.

*2003: Var kallaður í landsliðshóp Spánverja og lék sinn fyrsta leik gegn Portúgal, nýorðinn 20 ára. Skoraði tvö mörk í Evrópuleik gegn Armeníu í október, eftir að hafa komið inná sem varamaður á 29. mín.

*2004: Ákvað að ganga til liðs við Arsenal 27. janúar. Skoraði fimm mörk fyrir Sevilla keppnistímabilið 2003-2004.