VILHELM Gauti Bergsveinsson, fyrirliði handknattleiksliðs HK, leikur ekki meira með Kópavogsfélaginu á þessu tímabili.
VILHELM Gauti Bergsveinsson, fyrirliði handknattleiksliðs HK, leikur ekki meira með Kópavogsfélaginu á þessu tímabili. Vilhelm Gauti þarf að gangast undir uppskurð á öxl í næsta mánuði en samkvæmt frétt á vef HK kom í ljós þegar hann fór í speglun fyrir skömmu að öxlin er illa farin. Þetta er mikið áfall fyrir liðið en Vilhelm Gauti hefur verið sérstaklega mikilvægur hlekkur í varnarleik þess. HK hafnaði í þriðja sæti suðurdeildar Íslandsmótsins fyrir áramótin og leikur í úrvalsdeildinni sem hefst 6. febrúar en þá tekur HK á móti Haukum í fyrstu umferðinni.