Kaupa í Norðlenska | Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að kaupa hlutafé í Norðlenska matborðinu fyrir 30 milljónir króna. Á fundinum voru lögð fram drög að samningi um hlutafjárkaupin, að upphæð 30 milljónir króna.
Kaupa í Norðlenska | Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að kaupa hlutafé í Norðlenska matborðinu fyrir 30 milljónir króna. Á fundinum voru lögð fram drög að samningi um hlutafjárkaupin, að upphæð 30 milljónir króna. Bæjarráð, sem og stjórn Framkvæmdasjóðs Akureyrar fól bæjarstjóra frágang samningsins við Norðlenska matborðið á grundvelli þeirra draga sem fyrir lágu sem og undirritun samningsins.

Oktavía Jóhannesdóttir vék af fundi og tók ekki þátt í umfjöllun um málið á fundi bæjarráðs.