HAGNAÐUR Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði nam 129 milljónum króna árið 2003 eftir skatta, en árið 2002 var hagnaður Loðnuvinnslunnar 295 millj.

HAGNAÐUR Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði nam 129 milljónum króna árið 2003 eftir skatta, en árið 2002 var hagnaður Loðnuvinnslunnar 295 millj. Í samanburði á afkomunni á milli ára munar mest um að fjármagnskostnaður á síðasta ári nam 135 milljónum króna en fjármunatekjur árið 2002 voru 118 milljónir króna. Þá hefur styrking íslensku krónunnar einnig mikil áhrif á útkomuna, þar sem mun færri krónur fást fyrir afurðirnar. Rekstrartekjur félagsins að frádregnum eigin afla voru tæpir kr. 2,7 milljarðar og höfðu aukist um 17% frá árinu áður.

Hagnaður án afskrifta og fjármagnskostnaðar (EBITDA) nam 452 millj. eða 17% af tekjum og lækkaði um kr. 28 millj. frá fyrra ári. Veltufé frá rekstri nam 378 milljónum sem er 14% af tekjum, en árið 2002 var fjármunamyndunin 423 milljónir eða 18%. Afskriftir voru 267 milljónir og höfðu lækkað um 17 milljónir milli ára. Eigið fé félagsins var í árslok 1.470 milljónir. Arðsemi eigin fjár var 8,8%.

Hluthafar í árslok voru 226. Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga er stærsti hluthafinn með um 84% hlutafjárins.