Gwyneth Paltrow grét úr sér augun er hún flutti þakkarræðu sína.
Gwyneth Paltrow grét úr sér augun er hún flutti þakkarræðu sína. — Reuters
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
LEIKKONAN Gwyneth Paltrow hlaut þann vafasama heiður að hafna í efsta sæti listans yfir þá sem síst áttu Óskarinn skilinn. Þetta eru niðurstöður úttektar sem breska tímaritið Total Film lét gera meðal lesenda sinna.

LEIKKONAN Gwyneth Paltrow hlaut þann vafasama heiður að hafna í efsta sæti listans yfir þá sem síst áttu Óskarinn skilinn. Þetta eru niðurstöður úttektar sem breska tímaritið Total Film lét gera meðal lesenda sinna.

Paltrow fékk Óskarinn fyrir frammistöðu sína í myndinni Shakespeare in Love 1999. Þá féll hún saman og hágrét er hún þakkaði fyrir sig stelpan en Bretinn lét sér greinilega fátt um finnast. Russell Crowe er sá karlleikari sem síst hefur átt sinn Óskar skilinn, að mati lesenda Total Film, en hann fékk verðlaunin fyrir Gladiator árið 2001.

Sú kvikmynd sem síst átti skilið að fá Óskarsverðlaun sem besta myndin er svo engin önnur en farsælasta kvikmynd sögunnar, Titanic, sem vann árið 1998 og lesendur Total Film töldu leikstjóra hennar James Cameron ekki heldur hafa átt að fá Óskar fyrir framlag sitt. Chicago kom næst á eftir Titanic í kosningunni um verstu Óskarsmyndirnar, þá Forrest Gump og svo Rocky.

Tom Hanks lenti í öðru sæti á eftir Russell Crowe yfir verstu leikarana sem fengið hafa Óskar, en hann hefur fengið styttuna eftirsóttu tvisvar, fyrir Philadelpia og Forrest Gump. Halle Berry, sem fékk Óskarinn í fyrra fyrir Monster's Ball, kom hins vegar næst á eftir Paltrow og þá Cher en hún fékk sinn Óskar fyrir Moonstruck.

Í hinu liðinu, þeir sem að mati lesenda voru best að Óskarnum sínum komnir, voru Robert De Niro, fyrir frammistöðu sína í Raging Bull frá 1980, og Jodie Foster fyrir túlkun sína á lögreglukonunni Clarice Starling í The Silence of the Lambs frá 1991.

The Godfather var svo valin sú Óskarsverðlaunamynd sem best var að verðlaunum sínum komin en Steven Spielberg átti leikstjóraverðlaun sín helst skilin fyrir gerð Schindler's List.

Að mati Matts Muellers, ritstjóra Total Film, líður Paltrow fyrir "yfirgengilega tilfinningasemi" í þakkarræðunni. Orðsporið hafi þá hlotið varanlegan skaða í Bretlandi. Þá sér hann eina meginástæðu fyrir óvinsældum Titanic í dag; það að hún skuli vera tekjuhæsta kvikmynd sögunnar. "Slík mynd er dæmd til að vera umdeild í sögunni."