Með samþykkt bæjarstjórnar Akraness verða gerðar breytingar á starfi slökkviliðsstjóra og auka á samstarf við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Breytingarnar voru samþykktar með níu samhljóða atkvæðum í bæjarstjórn.
Með samþykkt bæjarstjórnar Akraness verða gerðar breytingar á starfi slökkviliðsstjóra og auka á samstarf við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Breytingarnar voru samþykktar með níu samhljóða atkvæðum í bæjarstjórn. — Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Akranes | Á bæjarstjórnarfundi hinn 24. febrúar sl. samþykkti bæjarstjórn Akraness samhljóða með 9 atkvæðum ýmsar breytingar á tækni- og umhverfissviði.

Akranes | Á bæjarstjórnarfundi hinn 24. febrúar sl. samþykkti bæjarstjórn Akraness samhljóða með 9 atkvæðum ýmsar breytingar á tækni- og umhverfissviði.

Bæjarráð hefur á liðnum vikum farið yfir stjórnsýslu- og rekstrarúttekt sem ráðgjafafyrirtækið IBM framkvæmdi á tækni- og umhverfissviði.

Í skýrslu IBM koma fram nokkrar tillögur varðandi breytingar á fyrirkomulagi og samþykkti bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn tillögur sem nú hafa verið samþykktar.

Í fyrsta lagi er lagt til að ráðinn verði frá og með 1. apríl nk. tæknifræðingur eða verkfræðingur sem annist m.a. skipulagsmál, eignasjóð og landupplýsingakerfi samkvæmt nánari útfærslu sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs. Samkvæmt því verður ráðningarsamningur skipulagsfulltrúa, sem rennur út í lok júnímánaðar, ekki framlengdur í lok starfstímans.

Í öðru lagi er lagt til að starf tækniteiknara, sem m.a. sér um innskráningu landupplýsingakerfi, verði aukið úr 80% í 100%. Í þriðja lagi að ráða í 50% starf slökkviliðsstjóra til eins árs, en að byggingarfulltrúi fari í umboði slökkviliðsstjóra og í samráði við hann, með mál sem varða brunaeftirlit. Á grundvelli fyrirhugaðs samnings við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um gagnkvæmt samstarf o.fl. verði leitað eftir samkomulagi við SHS um samstarf varðandi æfingar slökkviliðsins. Ákvörðun þessi verður endurskoðuð innan eins árs m.a. með það í huga að skoða valkosti varðandi aukið samstarf við SHS.

Í fjórða lagi er lagt til að ákvörðun um hvort sameina eigi Gámu og Þjónustumiðstöð verði frestað til ársins 2005 þegar samningar um sorphirðu o.fl. renna út. Þar til sú ákvörðun verði tekin verði umhverfisfulltrúi næsti yfirmaður forstöðumanns Þjónustumiðstöðvar og er sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs falið að skilgreina nánar verkefni á því sviði. Tilgangur þessa er að skerpa á framkvæmd verkefna á opnum svæðum og þeim, umhverfismálum sem Þjónustumiðstöðin kemur að.

Að auki er sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs ætlað að skipuleggja og skilgreina vinnsluferla við undirbúning deiliskipulags og vinnsluferli mála milli nefndarfunda. Honum er einnig ætlað að gera starfsmannafundi að virkari þætti í starfseminni og tryggi þannig framgang þeirra verkefna sem unnið er að, traust fjárhags- og verkeftirlit og að ætíð liggi fyrir gott yfirlit verkefna. Að lokum er sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs ætlað að taka til skoðunar aðgengi að starfsmönnum sviðsins, skipulagningu daglegs vinnutíma o.fl. með tilliti til efnis fyrirliggjandi úttektar.