RÚMLEGA 70 manns mættu á fyrsta fund Cruise Iceland-samtakanna sem haldinn var á Hótel Sögu 20. febrúar sl.

RÚMLEGA 70 manns mættu á fyrsta fund Cruise Iceland-samtakanna sem haldinn var á Hótel Sögu 20. febrúar sl. Á fundinum voru flutt erindi um móttöku skemmtiskipa í hinum ýmsu höfnum landsins og fram kom að sumarið 2004 verður það stærsta í komum skemmtiskipa til landsins. Til Reykjavíkur koma 68 skip samanborið við 58 árið 2003 og Akureyringar eiga von á 53 skipum en fengu 43 í fyrra. Einnig var fjallað um öryggismál í höfnum en ný lög þar að lútandi, sem taka gildi hinn 1. júlí í ár, munu breyta ýmsu við móttöku skipanna og meðal annars aðgengi almennings að hafnarsvæðum.

Á fundinum kom fram að samtökin munu sérstaklega leggja áherslu á að markaðssetja Ísland sem áhugaverðan áfangastað skemmtiskipa, bæði í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. M.a. verður hugað að möguleikum þess að fá fleiri skip til þess að skipta um farþega á Íslandi og einnig verða möguleikar þess efnis að fá skip til að sigla hringferðir í kringum Ísland sumarlangt skoðaðir. Samtökin munu einnig stuðla að frekari vöruþróun í framboði afþreyingar fyrir farþega skipanna og skoða möguleika á frekari verslun við farþega og útgerð skipanna.

Í stjórn Cruise Iceland voru kjörnir: Ágúst Ágústsson formaður, Reykjavíkurhöfn, Einar Gústavsson varaformaður, Ferðamálaráði Íslands í Banadaríkjunum, Pétur Ólafsson, Akureyrarhöfn, Gunnar Rafn Birgisson, Ferðaskrifstofunni Atlantik, og Svava Johansen, Versluninni 17. Í varastjórn voru kjörnir: Tryggvi Harðarson Seyðisfirði, Ársæll Harðarson, Ferðamálráði Íslands, Ingvar Sigurðsson, Samskipum hf., Guðmundur M. Kristjánsson, Ísafirði, og Edda Sverrisdóttir, Versluninni Flex.