FREGNIR herma að Nicole Kidman sé aftur byrjuð með Lenny Kravitz . Sást til þeirra þar sem þau héldust í hendur í Miami um helgina og skemmtu sér við undirleik kúbanskra tónlistarmanna.

FREGNIR herma að Nicole Kidman sé aftur byrjuð með Lenny Kravitz . Sást til þeirra þar sem þau héldust í hendur í Miami um helgina og skemmtu sér við undirleik kúbanskra tónlistarmanna. Kidman á að hafa blásið af áform um að giftast rokkaranum eftir að hafa komist að því að hann héldi framhjá með brasilískri listakonu. Svo eiga þau að hafa saknað hvort annars svo óskaplega yfir jólin að þau hafi ekki getað annað en náð saman að nýju. Fyrrverandi eiginkona Kravitz og barnsmóðir, Lisa Bonet , var með þeim í för í Miami en þeim kemur víst vel saman, Kidman og Bonet...

Gwyneth Paltrow langar helst að ala ófætt barn þeirra Chris Martin úr Coldplay upp á Spáni. Þau hyggjast byggja sér setur við þorpið Buenaventura og hreiðra þar um sig í framtíðinni. Upphaflega ætluðu þau að ala barnið upp í Lundúnum en hættu við eftir að vinafólk Paltrow gaf þeim landskika á Spáni...