Katla Björnsdóttir og Sonja Geirsdóttir voru á ferðinni í Ólafsfirði með tvo fallega hunda. Birta litla er í kerrunni en Sonja heldur á Mána.
Katla Björnsdóttir og Sonja Geirsdóttir voru á ferðinni í Ólafsfirði með tvo fallega hunda. Birta litla er í kerrunni en Sonja heldur á Mána.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
ÖSKUDEGINUM var fagnað á öllum landshornum í gær og léku bæði börn og fullorðnir við hvern sinn fingur, því hefð er fyrir sprelli á þessum ágæta miðvikudegi.

ÖSKUDEGINUM var fagnað á öllum landshornum í gær og léku bæði börn og fullorðnir við hvern sinn fingur, því hefð er fyrir sprelli á þessum ágæta miðvikudegi. Bæði norðan heiða og sunnan klæddist yngsta kynslóðin skrýtnum múnderingum og söng og trallaði fyrir sælgæti.

Jafnt í göngugötunni á Akureyri og í Vínberinu ómaði söngur ungmennanna bjartur og skær á meðan heimilisfólk og starfsfólk á Grund dansaði dátt við harmónikkuleik á hattaballi, þar sem sjá mátti skemmtilega furðuhatta á hvers manns kolli.

Á Suðurnesjunum var líka flippað dálaglega og víða um land sáust smávaxnar nornir, jólasveinar, englar og púkar, kisur og kusur og allra heima kvikindi hoppandi og skríkjandi í blíðskaparveðrinu sem einkenndi daginn.

Í gamla daga var nokkuð rík hefð fyrir öskudagsfögnuði á Akureyri, en annars staðar á landinu var lítið haldið upp á þennan dag. Þá var jafnan til siðs að slá hrafninn úr tunnunni, en þá var jafnan fundinn dauður hrafn og hengdur upp. Væntanlega hefur þessi siður verið lagður af sökum þess að hann hefur verið talinn miður geðslegur og tunna fyllt af sælgæti í staðinn. Verslunareigendur tóku þó nær undantekningarlaust vel á móti ungum söngvurum.