Um helgina má finna lækkað verð á mjólkurvörum í Bónus , sem gefur afslátt af mjólk og léttmjólk, og 11-11 sem er með tilboð á drykkjarjógúrti. Blómkál er á lækkuðu verði í Fjarðarkaupum og epli í Nettó .
Um helgina má finna lækkað verð á mjólkurvörum í Bónus, sem gefur afslátt af mjólk og léttmjólk, og 11-11 sem er með tilboð á drykkjarjógúrti. Blómkál er á lækkuðu verði í Fjarðarkaupum og epli í Nettó. Nóatún og Nettó eru með tilboð á pitsu og kóki í einum pakka og Krónan hefur lækkað verð á grísakótilettum þar sem pakki af grísahakki fylgir frítt með. Kryddað lambakjöt er á tilboðsverði í Samkaupum og Nóatún hefur lækkað verð á lambafillet með fitu úr kjötborði. Hagkaup eru með afslátt af frosnu lambalæri. Heill ófrosinn kjúklingur er á tilboðsverði í Nóatúni og kjúklingur í bitum með afslætti hjá Hagkaupum, Samkaupum, Spar og Þinni verslun.